Á feykir.is er sagt frá því að Karólína í Hvammshlíð í Skagabyggð hafi sigrað með miklum yfirburðum kosningu um mann ársins 2023 á vegum fréttablaðsins Feyki. Lesa má um kosninguna hér
Við óskum Karólínu hjartanlega til hamingju, hún á þetta svo sannarlega skilið fyrir þá miklu þrautsegju sem hún hefur sýnt í baráttu við riðu í sauðfé á Íslandi.